fimmtudagur, janúar 17, 2008

Ný heimasíða!
Tónlistarblogg Útvarpsþáttarins Frank hefur verið flutt á heimasíðuna blogg.visir.is/frank. Þið megið endilega uppfæra tenglalistana ykkar og endilega kíkið í heimsókn. Þarna verður nóg um að vera næstu misseri...

Annars er það helst að frétta af Útvarpsþættinum Frank að hann er nú orðinn sunnudagseftirmiðdagsþáttur milli 14 og 17 á X-inu 977. Fránkurinn er sem sagt orðinn jafnvel enn spikfeitari en hann var og því fagna auðvitað allir. Næsta sunnudag verður td nóg um að vera. Farið verður í sögu The Magnetic Fields, Baldvin Esra, aðalmaðurinn á bakvið Kimi Records á Akureyri, verður tekinn á tali og síðast en ekki síst verður spilað session sem Þórir aka My Summer as a Salvation Soldier tók upp hjá mér um daginn. Missið þess vegna endilega ekki af neinu næstkomandi sunnudag...